Markúsarguðspjall12
1Síðan sagði hann þeim dæmisögu: „Það var einu sinni maður sem plantaði víngarði. Hann smíðaði trausta girðingu í kringum hann, gróf stóra skurði og reisti varðturn. Síðan réði hann menn til að sjá um víngarðinn áður en hann fór sjálfur af stað í langt ferðalag.2Eftir uppskerutímann sendi hann þjón sinn til umsjónarmannanna til að sækja uppskeru víngarðsins.3En umsjónarmennirnir tóku þjóninn, börðu hann og ráku hann tómhentan burt.4Eigandinn sendi þá annan þjón til víngarðsins, en umsjónarmennirnir hentu í hann steinum og ráku hann líka burt.5Eigandinn sendi þá fleiri þjóna til þeirra, en umsjónarmennirnir drápu eða börðu þá alla.6Eigandinn átti einn son, sem honum þótti ákaflega vænt um. Loks sendi hann þennan son sinn af stað til umsjónarmannanna. „Þeir hljóta að minnsta kosti að sýna syni mínum virðingu,“ hugsaði hann með sér.7En umsjónarmennirnir sögðu hver við annan: „Þetta er erfingi eigandans! Drepum hann, þá eignumst við víngarðinn.“8Og þeir tóku soninn, drápu hann og hentu honum út úr víngarðinum.9Hvað gerir eigandi víngarðsins þá eiginlega? Jú, hann kemur og eyðir umsjónarmönnunum og gefur einhverjum öðrum víngarðinn.10Í ritningunni stendur: „Steinninn sem smiðirnir höfnuðu verður hornsteinn byggingarinnar.11Mikið er þetta stórkostlegt verk Drottins!““ 12
Æðstuprestarnir, lögmálskennararnir og öldungarnir vissu að með þessari dæmisögu var Jesús að tala um þá. Þeir hefðu viljað handtaka hann, en voru hræddir um að fólkið myndi bregðast illa við því og strunsuðu þess vegna út13og sendu í staðinn farísea og Heródesarsinna til Jesú til þess að reyna að fá hann til að segja eitthvað sem þeir gætu náð honum fyrir. 14„Kennari,“ sögðu þeir við hann, „við sjáum hvað þú ert heiðarlegur og staðfastur. Þú lætur ekki skoðanir mannanna hafa áhrif á þig, heldur kennir sannleik Guðs. Hvort er löglegt eða ólöglegt að borga skatt til keisarans? Ættum við að gera það eða ekki?“15En Jesús vissi á hvaða hræsni þeir byggðu þessa spurningu. „Af hverju eruð þið að reyna að ná mér svona?“ spurði hann þá. „Komið með pening til mín.“16Þeir réttu honum pening. „Hver er á myndinni á peningnum?“ spurði Jesús. „Hvaða nafn stendur á honum?“ „Það er keisarinn,“ svöruðu þeir.17„Gefið þá keisaranum það sem er merkt honum,“ sagði Jesús, „og Guði það sem er merkt Guði.“ Og við þessu gátu þeir ekkert sagt. 18Síðan komu saddúkearnir (sem trúa ekki á upprisuna) til Jesú.19„Kennari,“ spurðu þeir hann, „Móse skrifaði að ef maður á bróður sem deyr og skilur eftir sig eiginkonu, en engin börn, eigi hann að giftast eiginkonu bróður síns og eignast með henni börn svo fjölskylda bróðurins lifi áfram.20Segjum að það séu sjö bræður. Sá fyrsti giftir sig en deyr barnlaus.21Næsti bróðir giftist síðan eiginkonunni hans, en hann deyr líka barnlaus, og þriðji bróðirinn líka.22Þeir giftast henni allir sjö en enginn þeirra eignast börn með henni. Að lokum deyr eiginkonan sjálf líka.23Spurningin er: Þegar þau rísa öll upp í upprisunni, hver verður þá eiginmaður konunnar? Því allir bræðurnir sjö voru giftir henni.“24„Ég held að ástæðan fyrir því að þið misskiljið þetta,“ svaraði Jesús, „sé að þið þekkið hvorki ritninguna né mátt Guðs.25Eftir upprisuna mun fólk hvorki vera gift né gifta sig, heldur lifa eins og englar á himnum. 26Og talandi um upprisuna – hafið þið ekki lesið í Mósebókunum um það sem Guð sagði við Móse úr þyrnirunnanum: „Ég er Guð Abrahams, Guð Ísaks og Guð Jakobs“?27Hann er ekki Guð hinna dauðu, heldur Guð hinna lifandi. Það er þetta sem þið eruð að misskilja.“ 28Einn af lögmálskennurunum heyrði þetta samtal og hversu vel Jesús svaraði. Hann kom því til þeirra og spurði: „Hvert er mikilvægasta boðorðið?“ 29„Mikilvægasta boðorðið,“ svaraði Jesús, „er „Heyr, ó Ísrael: Enginn er Guð nema Drottinn Guð“,30og „Elskaðu Drottin Guð þinn af öllu hjarta, og af allri sál, og af öllum huga, og af öllum mætti“. Þetta er mikilvægasta boðorðið.“31Næstmikilvægasta boðorðið er: „Elskaðu annað fólk eins og sjálfan þig“.
Það eru engin boðorð mikilvægari en þessi.“ 32„Þetta er alveg rétt hjá þér, kennari,“ sagði lögmálskennarinn. „Það er bara einn Guð, og enginn Guð nema hann,33og það að elska hann af öllu hjarta, og af allri sál, og af öllum mætti, og það að elska annað fólk eins og okkur sjálf, skiptir meira máli en allar fórnirnar.“34Jesús sá að maðurinn hafði skilið það sem hann var að segja. „Þú ert ekki langt frá konungsríki Guðs,“ sagði hann. Og eftir þetta þorði enginn að spyrja hann fleiri spurninga. 35Stuttu seinna var Jesús að kenna í musterinu. „Hvernig geta lögmálskennararnir sagt að Kristur sé sonur Davíðs?“ sagði hann. 36„Með hjálp Heilags anda sagði Davíð: „Drottinn sagði við Drottin minn: Sittu hjá mér á meðan ég legg undir þig alla óvini þína“.37Davíð kallar hann þarna „Drottin“ – hvernig getur hann þá verið sonur hans?“ Og fólkið hlustaði á orð hans, alveg heillað. 38„Passið ykkur á lögmálskennurunum,“ hélt hann áfram. „Þeir elska að ganga um markaðina í fínu fötunum sínum og láta fólk heilsa sér,39og að sitja í bestu sætunum í samkomuhúsunum og vera heiðursgestir í veislum. 40Þeir fara með langar bænir til að fela það hvernig þeir hrifsa til sín eigur fátækra – fyrir það verða þeir dæmdir harðlega.“ 41Jesús sat hjá fjársöfnunarkistunum og horfði á fólkið setja peninga í þær. Þeir ríkustu gáfu oft háar upphæðir.42Fátæk ekkja kom að kistunum og setti í þær tvo smápeninga – mjög lága upphæð.43Jesús kallaði lærisveina sína til sín. „Sjáið þessa fátæku ekkju,“ sagði hann við þá. „Enginn gaf meira en hún í fjársjóðskisturnar.44Hinir gáfu nefnilega þegar þeir áttu meira en nóg, en hún lifir í fátækt og gaf samt allt sem hún átti.“