Markúsarguðspjall13
1Þegar Jesús kom út úr musterinu sagði einn af lærisveinunum við hann: „Sjáðu steinana og byggingarnar hér!“ 2„Sjáið þessar stóru byggingar,“ sagði Jesús. „Þær verða lagðar í rúst svo það verður ekki einn einasti steinn ofan á öðrum steini.“ 3Svolitlu seinna, þegar Jesús sat á Ólífufjallinu á móti musterinu, komu Pétur, Jakob, Jóhannes og Andrés til hans.4„Hvenær á þetta eiginlega eftir að gerast?“ spurðu þeir hann. „Hvaða merki sjáum við um að það sé komið að því?“5„Ekki láta neinn blekkja ykkur,“ svaraði Jesús.6„Margir eiga eftir að koma í mínu nafni og segjast vera ég – þeir munu blekkja marga.7En ekki hafa áhyggjur þegar þið sjáið átök og heyrið fréttir af átökum. Það þarf allt að gerast, en það þýðir ekki að endirinn sé kominn.8Þjóðirnar munu berjast, og jarðskjálftar munu eiga sér stað víða, og hungursneyðir og alls konar vandamál. Þetta gefur til kynna að erfiðu tímarnir séu að byrja.9En þið – þið verðið dregnir fyrir æðstaráðið, barðir í samkomuhúsunum og leiddir fyrir landstjóra og konunga vegna þessa að þið sögðuð frá mér. 10Fyrst og fremst þarf allur heimurinn að fá að heyra fagnaðarerindið. 11En þegar þið eruð teknir og dregnir fyrir dómstóla skuluð þið ekki hafa neinar áhyggjur af því sem þið eigið að segja. Orðin koma til ykkar þegar þið þurfið á þeim að halda – þá verðið það ekki þið sem talið heldur Heilagur andi.12Menn munu svíkja bræður sína til dauða og feður munu svíkja börnin sín. Börn munu svíkja foreldra sína og láta dæma þá til dauða.13Fólk á eftir að hata ykkur vegna mín, en ef þið látið það ekki buga ykkur bjargist þið að lokum. 14En þegar óhugnaðurinn sem spámaðurinn Daníel talaði um stendur þar sem hann á ekki að vera (lesandinn skilur hvað ég er að meina) þarf fólkið í Júdeu að flýja strax upp til fjallanna. 15Ef einhver er uppi á þaki hefur hann ekki tíma til að fara aftur inn í húsið til að sækja dótið sitt16og ef einhver er úti á túni hefur hann ekki tíma til að snúa við og sækja jakkann sinn.17Þetta verður skelfilegt tímabil fyrir ófrískar konur og konur með börn á brjósti!18Þið verðið að vona að þið þurfið ekki að flýja um vetur.19Þetta verða hræðilegri tímar en hafa nokkurn tímann sést frá sköpun heimsins, og það verða aldrei hræðilegri tímar en þessir.20Ef Drottinn hefði ekki ákveðið að stytta þessa tíma myndi enginn bjargast. En vegna fólksins sem hann útvaldi hefur hann.21Ef einhver segir ykkur að Kristur sé hér eða þar skuluð þið ekki trúa honum. 22Það koma nefnilega falskir Kristar og spámenn. Þeir gera kraftaverk til að reyna að blekkja fólk, jafnvel fólkið sem Guð hefur útvalið.23En hafið augun opin, því nú er ég búinn að vara ykkur við þessu.24Eftir þessa erfiðu tíma hætta sólin og tunglið að skína.25Stjörnurnar falla af himninum og kraftar himnanna verða skekin. 26Síðan sjá allir Mannssoninn og mátt hans og kraft þegar hann kemur úr skýjunum. 27Svo sendir hann englana sína til að safna saman fólkinu sem hann hefur útvalið hvaðan sem það er í heiminum.28Ég skal segja ykkur dæmisögu um fíkjutré: Þegar greinar þess eru mjúkar og ný lauf vaxa á þeim veit maður að það styttist í sumarið.29Þannig verður það þegar þið sjáið allt þetta gerast – þá vitið þið að það styttist í þetta, að það mun bráðum gerast.30Kynslóðin sem er á lífi núna verður ekki dáin áður en þetta hefur allt saman gerst. 31Jafnvel þó himinninn og jörðin hrynji til grunna munu þessi orð mín samt ekki falla úr gildi.32En enginn veit nákvæmlega hvaða dag og klukkan hvað þetta gerist – hvorki englarnir né Sonurinn – nema Faðirinn sjálfur. 33Fylgist þess vegna vel með og biðjið, því þið vitið ekki hvenær þetta gerist.34Þetta er eins og þegar maður fer af stað í langt ferðalag og segir þjónunum sínum að sjá um húsið á meðan, verkamönnunum að vinna vinnuna sína og dyravörðunum að standa vörð.35Eins þurfið þið að standa vörð, því þið vitið ekki hvenær húseigandinn kemur heim. Það gæti gerst um kvöld, um miðja nótt eða snemma um morguninn.36Þið megið ekki láta hann finna ykkur sofandi á verðinum.37Þess vegna segi ég ykkur öllum að standa vörð.“