Markúsarguðspjall11

1Þegar þeir voru komnir nálægt Jerúsalem, til Betfage og Betaníu við Ólífufjallið, sendi Jesús tvo lærisveina sína af stað.2„Farið til þorpsins sem þið sjáið þarna,“ sagði hann þeim. „Þar finnið þið asna sem er bundinn og enginn hefur áður farið á bak. Leysið hann og komið með hann hingað.3Ef einhver spyr ykkur hvað þið séuð að gera skuluð þið segja að meistarinn þurfi asnann, og þá fáið þið að koma með hann hingað.“4Þeir fóru inn í þorpið, fundu asnann bundinn við dyr við götuna, og leystu hann.5Nokkrir þorpsbúanna fylgdust með þeim. „Hvað eruð þið að gera við asnann?“ spurðu þeir.6Þeir svöruðu eins og Jesús hafði sagt þeim að svara, og þorpsbúarnir leyfðu þeim þá að fara leiðar sinnar með asnann.7Þeir komu með asnann til Jesú, breiddu skikkjurnar sínar yfir hann, og Jesús fór á bak honum. 8Margt fólk lagði skikkjurnar sínar á veginn þegar Jesús fór framhjá – aðrir hjuggu greinar af trjánum og lögðu þær á veginn.9Fólkið sem flykktist á undan og eftir Jesú eftir veginum hrópaði „Hósanna! Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins!10Blessað sé konungsríki Davíðs, forföður okkar, sem kemur í nafni Drottins! Hósanna og aftur hósanna!“ 
11Jesús kom til Jerúsalem og fór beint í musterið að skoða sig um. En þar sem það var komið kvöld fór hann síðan aftur út úr borginni og til Betaníu með lærisveinum sínum tólf. 
12Daginn eftir, þegar þeir voru á leið frá Betaníu og aftur til borgarinnar, var Jesús svangur.13Hann sá í fjarska fíkjutré með laufum, og fór að athuga hvort það væru einhverjar fíkjur á trénu. En þegar hann kom að trénu sá hann að það var ekkert á því nema lauf, þar sem það var ekki rétt árstíð til að finna fíkjur á trjánum. 14„Héðan í frá skal enginn borða ávexti af þér framar,“ heyrðu lærisveinar Jesú að hann sagði við fíkjutréð.15Þegar þeir komu til Jerúsalem fór Jesús í musterið. Þar byrjaði hann að henda út þeim sem stunduðu viðskipti í musterinu, hrinti um koll borðum gjaldeyrisvíxlaranna og stólum dúfnasalanna 16og rak út þá sem báru hluti inn og út úr musterinu.17„Vitið þið ekki hvað stendur í ritningunni?“ kallaði hann til fólksins. „Þar stendur: „Hús mitt á að vera bænahús fyrir fólk af öllum þjóðum“, en þið farið með það eins og það sé ræningjabæli!“18Þegar lögmálskennararnir og æðstuprestarnir heyrðu þetta urðu þeir hræddir við hann, því fólkið hlustaði greinilega á hann, og byrjuðu að ræða sín á milli hvernig þeir gætu losnað við hann. 19Um kvöldið fór Jesús aftur út úr borginni.
20Næsta morgun fóru þeir aftur framhjá fíkjutrénu og sáu að það hafði skrælnað alveg niður að rótum.21Pétur mundi það sem hafði gerst morguninn áður. „Sjáðu, kennari,“ sagði hann. „Fíkjutréð sem þú bölvaðir er skrælnað!“22„Trúin skiptir öllu máli,“ svaraði Jesús.23„Muniði þetta: Sá sem segir fjalli að rífa sig upp með rótum og kasta sér í hafið, ef hann efast ekkert heldur trúir því af öllu hjarta að það sem hann segir muni gerast, mun það gerast.24Það sem ég er að segja er að þið verðið að trúa að þið fáið það sem þið biðjið um, og þá fáið þið það.25Ef þið eruð að biðja og munið allt í einu að þið eruð ósáttir við einhvern skuluð þið fyrirgefa honum. Þannig fyrirgefur Faðir ykkar á himnum það sem þið hafið gert rangt. 26En ef þið fyrirgefið ekki öðrum sjálfir fyrirgefur Faðir ykkar á himnum ykkur heldur ekki fyrir það sem þið hafið gert rangt.“
27Þegar þeir komu aftur til Jerúsalem og Jesús gekk inn í musterið komu æðstuprestarnir, lögmálskennararnir og öldungarnir þar til hans. 28„Hvaða vald þykist þú hafa til að gera þetta?“ spurði þeir hann. „Hver gaf þér vald til þess?“29„Ég er með eina spurningu fyrir ykkur,“ svaraði Jesús. „Leyfið mér að spyrja hennar, og svarið henni, og svo skal ég segja ykkur hvaða vald ég hef til að gera þetta.30Skírn Jóhannesar – kom hún að ofan eða frá mönnum? Segið mér það.“31Æðstuprestarnir, lögmálskennararnir og öldungarnir ræddu þetta sín á milli. „Ef við segjum „að ofan“,“ sögðu þeir, „spyr hann af hverju við trúum honum þá ekki.32En ef við segjum „frá mönnum“ bregst fólkið illa við, því það trúir því að Jóhannes hafi verið raunverulegur spámaður.“33Að lokum sneru þeir sér þess vegna aftur að Jesú og sögðu: „Við getum ekki svarað þessari spurningu.“ „Nú,“ svaraði Jesús, „þá get ég heldur ekki sagt ykkur hvaðan ég fæ valdið til að gera það sem ég geri.“