Markúsarguðspjall9

1„Hlustið nú vel,“ sagði hann við þá. „Sumir þeirra sem eru hér í dag munu sjá konungsríki Guðs koma í fullum krafti áður en þeir deyja.“ 2Sex dögum síðar tók Jesús þá Pétur, Jakob og Jóhannes með sér upp á hátt fjall þar sem þeir gátu verið einir. Þar urðu þeir vitni að því þegar Jesús umbreyttist fyrir framan þá. 3Fötin hans urðu skyndilega glampandi skjannahvít, hvítari en nokkuð annað4og Elía og Móse birtust á fjallinu með þeim og töluðu við Jesú. 5„Kennari,“ kallaði Pétur til Jesú, „þetta er góður staður. Við gætum sett upp þrjú tjöld, eitt fyrir þig, eitt fyrir Móse og eitt fyrir Elía.“6Hann sagði þetta bara til að segja eitthvað í þessum ótrúlegu aðstæðum – þeir Jakob og Jóhannes voru allir orðlausir af hræðslu.7Stórt ský færðist yfir þá og rödd drundi út úr því. „Þetta er sonur minn, sem ég elska,“ sagði röddin. „Hlustið á hann!“ 8Skyndilega litu þeir í kringum sig og sáu engan þarna lengur nema Jesú.9Þegar þeir komu niður af fjallinu brýndi Jesús fyrir þeim að þeir mættu ekki segja neinum frá því sem þeir höfðu séð – ekki fyrr en eftir að Mannssonurinn væri risinn upp frá dauðum. 10Þeir sögðu þess vegna engum frá þessu, en tóku þetta til sín og veltu því lengi fyrir sér hvað Jesús ætti eiginlega við með því að hann myndi „rísa upp frá dauðum“.11„Af hverju segja lögmálskennararnir að Elía þurfi fyrst að koma aftur?“ spurðu þeir hann. 12„Það er rétt, Elía kemur vissulega aftur áður og endurreisir allt. En það stendur í ritningunni að Mannssonurinn muni þjást og fólk muni hæðast að honum. 13Elía er kominn aftur og fólkið hefur komið fram við hann eins og því sýndist, alveg eins og stendur í ritningunni.“
14Þegar Jesús kom aftur til hinna lærisveinanna sá hann að þeir voru umkringdir fólki, og lögmálskennararnir voru í djúpum samræðum við þá.15Fólkið var spennt að sjá Jesú og hljóp til hans til að heilsa honum.16„Um hvað voruð þið að tala við lærisveinana mína?“ spurði Jesús lögmálskennarana.17„Kennari,“ svaraði einn þeirra, „ég kom hingað til þín með son minn – hann er haldinn mállausum anda18sem þjáir hann endalaust, lætur hann froðufella og gnísta tönnum. Sonur minn er að veslast upp. Ég bað lærisveinana þína um að kasta andanum út en þeir gátu það ekki.“19„Mikið eruð þið trúlausir!“ sagði Jesús. „Hvað á ég eiginlega að gera við ykkur? Jæja, komið með hann til mín.“20Þeir komu með strákinn til hans. Um leið og hann sá Jesú byrjaði andinn að engjast um í stráknum, sem froðufelldi og féll til jarðar.21„Hversu lengi hefur hann verið svona?“ spurði Jesús föður stráksins. „Síðan hann var barn,“ svaraði hann.22„Þessi andi hefur margoft reynt að drepa hann með því að kasta honum í eld eða vatn. Hjálpaðu okkur ef þú mögulega getur, gerðu það!“23„Allt er mögulegt ef þú trúir,“ svaraði Jesús. 24„Meistari,“ hrópaði maðurinn með tárin í augunum, „ég trúi! Hjálpaðu mér með vantrúna!“ 25Jesús leit á fólkið sem hafði safnast saman í kringum þá. „Mállausi og heyrnarlausi andi,“ sagði hann við illa andann, „ég skipa þér að koma út úr honum og angra hann aldrei framar!“26Andinn öskraði hástöfum, engdist um í stráknum og fór út úr honum. Strákurinn lá hreyfingarlaus eftir á jörðinni. „Er hann dáinn?“ spurði einhver.27En Jesús tók í höndina á honum til að reisa hann á fætur og hann stóð upp.28Þegar þeir voru komnir heim spurðu lærisveinarnir hann: „Af hverju gátum við ekki kastað andanum út?“29„Þið kastið ekki út svona verum nema með bæn og föstu,“ svaraði Jesús. 
30Síðan fóru þeir þaðan og laumuðust í gegnum Galíleu, svo enginn tæki eftir þeim.31„Fólk á eftir að handtaka Mannssoninn og drepa hann,“ sagði hann við þá á leiðinni, „en hann mun rísa upp aftur þremur dögum eftir að hann hefur verið drepinn.“ 32Þeir skildu þetta ekki en þorðu ekki að spyrja hann nánar út í það.
33„Jæja,“ sagði Jesús við þá þegar þeir voru komnir á áfangastað í Kapernaúm, „hvað voruð þið að ræða ykkar á milli á leiðinni hingað?“34Þeir vildu ekki svara honum, því á leiðinni höfðu þeir verið að rífast um hver þeirra væri bestur.35Jesús fékk sér sæti og safnaði lærisveinunum tólf í kringum sig. „Sá sem vill verða fyrstur,“ sagði hann, „verður að vera síðastur. Hann verður að vera þjónn allra.“ 36Hann kallaði barn til sín og tók það í fangið.37„Ef þið takið á móti barni eins og þessu í mínu nafni,“ sagði hann við þá, „takið þið á móti mér. Og ef þið takið á móti mér takið þið ekki á móti mér, heldur þeim sem sendi mig.“ 
38„Kennari,“ sagði Jóhannes, „við sáum mann kasta út djöflum í þínu nafni. En hann var ekki einn af okkur, þannig að við bönnuðum honum að gera það.“39„Það hefðuð þið alls ekki átt að gera,“ svaraði Jesús. „Fólk sem getur gert kraftaverk í mínu nafni er ekki á móti mér.40Sá sem er ekki á móti okkur er með okkur. 41Sá sem svo mikið sem gefur ykkur vatnsglas í mínu nafni vegna þess að þið tilheyrið Kristi fær svo sannarlega laun fyrir það. 42Og sá sem leiðir börnin mín sem trúa á mig afvega væri betur settur ef hann hengdi stóran stein um hálsinn á sér og henti sér í sjóinn. 43Ef höndin á þér leiðir þig í villu skaltu skera hana af þér! Það er skárra að vera einhentur en að fara með tvær hendur til helvítis, í eldinn sem slokknar aldrei, 44þar sem ormarnir deyja aldrei og logarnir brenna að eilífu.45Og ef fóturinn á þér leiðir þig í villu skaltu skera hann af þér! Það er skárra að vera haltur en að fara með tvo fætur til helvítis, í eldinn sem slokknar aldrei,46þar sem ormarnir deyja aldrei og logarnir brenna að eilífu. 47Og ef augað í þér leiðir þig í villu skaltu stinga það úr þér! Það er skárra að fara eineygður inn í konungsríki Guðs en að vera kastað í eldinn í helvíti með bæði augun, 48þar sem ormarnir deyja aldrei og logarnir brenna að eilífu. 49Eldurinn saltar okkur öll.50Salt er ágætt en ef það missir saltbragðið er ekki hægt að salta það aftur. Verið þess vegna vel sölt og lifið í friði hvert við annað.“