Markúsarguðspjall5

1Loks komu þeir í land hinum megin við vatnið, í landi Gerasenanna. 2Þegar Jesús steig frá borði mætti honum maður sem var haldinn óhreinum anda.3Þessi maður dvaldi í grafreit – sama hvað fólk reyndi að gera til að binda hann fastan4sleit hann alltaf af sér alla fjötra og keðjur, og enginn réði við hann.5Hann ráfaði um í fjöllunum og grafreitnum dag og nótt, grét og barði sig með steinum. 6En þegar hann sá Jesú úr fjarska hljóp hann til hans með miklum látum.7„Hvað vilt þú mér, Jesús, sonur hins hæsta Guðs?“ hrópaði hann. „Í guðanna bænum, láttu mig vera!“ 8„Farðu út úr þessum manni, óhreini andi!“ svaraði Jesús honum.9„Hvað heitir þú?“ spurði hann andann. „Ég heiti Fjöldi,“ svaraði andinn, „því við erum margir. 10Ekki reka okkur héðan burt, ég bið þig!11Í fjöllunum héðan skammt frá er stór svínahjörð á beit.12Sendu okkur frekar til svínanna, og við förum í þau í staðinn.“13Þetta leyfði Jesús, og óhreinu andarnir færðu sig úr manninum og yfir í svínin. Síðan hljóp öll svínahjörðin af stað fram af kletti, svo öll svínin (um tvö þúsund talsins) drukknuðu. 14Svínahirðarnir hlupu og sögðu frá því sem þeir höfðu séð um allt svæðið, og fólk kom hvaðanæva að til að sjá það sem hafði gerst.15Það kom og sá bæði Jesú og manninn sem hafði verið andsetinn (sem var nú kominn í föt og orðinn alveg eðlilegur), og það varð hrætt.16Þeir sem höfðu orðið vitni að því sem gerðist sögðu fólkinu alla söguna af andsetna manninum og svínunum17og fólkið bað Jesú um að yfirgefa svæðið. 18Þegar Jesús steig um borð í bátinn bað maðurinn sem hafði verið andsetinn um að fá að koma með honum.19„Nei,“ sagði Jesús. „Farðu frekar heim til vina þinna og fjölskyldu og segðu þeim hvað Drottinn hefur gert fyrir þig og hvernig hann hefur sýnt þér miskunn.“ 20Og maðurinn fór því af stað, ferðaðist um Dekapólissvæðið og sagði frá öllu því stórkostlega sem Jesús hafði gert fyrir hann.
21Þegar Jesús hafði siglt til baka yfir vatnið safnaðist mikill mannfjöldi í kringum hann við ströndina.22Þeirra á meðal var einn af samkomuhússtjórunum, maður sem hét Jaírus. Þegar hann sá Jesú féll hann á kné fyrir framan hann.23„Litla dóttir mín er fárveik og er við dauðans dyr,“ hrópaði hann. „Komdu með mér, gerðu það, og bjargaðu lífi hennar með því að snerta hana.“24Jesús fór af stað með honum, og mannfjöldinn fylgdi þeim.25En í mannfjöldanum var líka kona sem hafði þjáðst af stöðugum blæðingum í tólf ár. 26Hún hafði eytt aleigunni í ótal erfiðar læknismeðferðir, án nokkurs árangurs – henni hafði bara versnað.27Hún hafði heyrt um Jesú og barðist þess vegna að honum í gegnum mannfjöldann og snerti föt hans.28„Ef ég næ bara að snerta fötin hans,“ hugsaði hún með sér, „hlýtur mér að batna.“29Um leið og hún snerti hann hættu blæðingarnar, og hún fann að hún hafði læknast.30Við þetta fann Jesús að kraftur hafði runnið frá honum. Hann sneri sér við. „Hver snerti fötin mín?“ spurði hann. 31„Það er fólk allt í kringum okkur,“ sögðu lærisveinarnir. „Hvernig geturðu spurt hver hafi snert þig?“32En hann leit í kringum sig og kom auga á konuna sem hafði snert hann.33Konan skalf af hræðslu, því hún vissi hvað hafði gerst. Hún féll á kné fyrir framan Jesú og sagði honum alla söguna.34„Kæra dóttir,“ sagði hann við hana, „Það er trúin þín sem hefur bjargað þér. Þetta er allt í lagi. Farðu nú og njóttu heilsunnar.“
35Meðan hann var að tala við konuna kom fólk frá húsi samkomuhússtjórans. „Dóttir þín er látin,“ sagði það honum. „Þú þarft víst ekki að ónáða kennarann lengur.“36En Jesús heyrði þetta. „Óttastu ekki,“ sagði hann við samkomuhússtjórann, „heldur hafðu trú.“37Og hann hélt einn áfram með Pétri og bræðrunum Jakobi og Jóhannesi38að heimili samkomuhússtjórans, þar sem allir voru harmi slegnir yfir andláti litlu stelpunnar, og steig inn.39„Hvaða sorgarlæti eru þetta?“ sagði hann. „Stelpan er ekki dáin – hún sefur bara.“ 40Fólkið hæddist að Jesú þegar það heyrði þetta. En hann skipaði öllum að fara út, og fór inn til litlu stelpunnar með föður hennar og móður.41Hann tók í hönd hennar og sagði við hana „Talíþa kúmí,“ sem þýðir „Vaknaðu, litla stúlka.“ 42Við það vaknaði þessi tólf ára stelpa og stóð á fætur. Fólkið trúði ekki sínum eigin augum.43Jesús skipaði þeim að segja engum frá þessu, og sagði þeim að gefa stelpunni eitthvað að borða.