Markúsarguðspjall3

1Jesús kom þá í samkomuhúsið. Þar var maður með visnaða hönd, 2og þeir fylgdust vandlega með honum til að sjá hvort hann myndi lækna á hvíldardeginum, svo það væri hægt að kæra hann fyrir það.3„Stígðu hingað fram,“ sagði Jesús við manninn með visnuðu höndina.4„Hvort er löglegra,“ sagði Jesús við þá, „að gera eitthvað gott á hvíldardeginum eða eitthvað illt? Að bjarga mannslífi, eða drepa mann?“ Þeir svöruðu því engu. 5Hann horfði á þá með vanþóknunarsvip, dapur yfir harðneskjunni sem þeir sýndu af sér. „Réttu út höndina,“ sagði hann við manninn. Maðurinn rétti út höndina, og hún varð jafn heilbrigð og hin höndin.6Eftir þetta byrjuðu farísearnir að ræða það við Heródesarsinnana hvernig þeir gætu þaggað niður í Jesú. 
7Þegar Jesús fór síðan með lærisveinum sínum að vatninu elti mikill mannfjöldi hann – fólk frá Galíleu, Júdeu,8Jerúsalem, Ídúmeu, löndunum handan árinnar Jórdan, Týrus og Sídon – vegna þess að það hafði heyrt um allt það ótrúlega sem hann hafði gert.9Jesús varð að segja lærisveinunum að vera tilbúnir með lítinn bát, ef mannfjöldinn skyldi þrengja sér að honum -10hann hafði nefnilega læknað svo marga að veikt fólk reyndi oft að komast að honum til að snerta hann.11Í hvert skipti sem óhreinir andar sáu hann féllu þeir fram fyrir hann og hrópuðu: „Þetta er sonur Guðs!“ 12Hann skipaði þeim að ljóstra því ekki upp fyrir neinum hver hann væri.
13Jesús gekk upp á fjall og kallaði þar formlega til sín þá sem hann hafði valið til að ganga með sér.14Hann valdi tólf lærisveina til að fylgja sér - þessa tólf sendi hann út til þess að flytja boðskap sinn15og gerði þeim kleift að lækna fólk af veikindum og reka út djöfla.16Þessir tólf lærisveinar voru Símon (sem Jesús gaf nafnið Pétur),17Jakob og Jóhannes Sebedeussynir (sem hann kallaði „boargenes“, sem þýðir „þrumusynirnir“), 18Andrés, Filippus, Bartólómeus, Matteus, Tómas, Jakob Alfeusson, Taddeus, Símon kananíti19og Júdas Ískaríot, sem átti eftir að svíkja hann. 
20Eftir að þeir voru komnir heim flykktist svo mikill fjöldi fólks að Jesú að þeir höfðu ekki einu sinni næði til þess að borða.21Ættingjar hans sem fréttu af þessu reyndu að tala um fyrir honum. 22Jerúsalemsku lögmálskennararnir sögðu að hann væri andsetinn, og að þegar hann henti djöflum út úr fólki hlyti hann að vera að nota mátt djöflanna sjálfra. 23Jesús kallaði þá til sín og útskýrði þetta fyrir þeim með dæmisögu. „Hvernig ætti Satan að geta kastað sjálfum sér út?“ spurði hann þá.24„Lið sem rís upp á móti sjálfu sér fellur fljótlega25og hús sem rís upp á móti sjálfu sér hrynur fljótlega.26Ef Satan risi upp á móti sjálfum sér yrði hann fljótlega búinn að vera.27Það er ekki hægt að brjótast inn hjá sterkum manni og ræna hann án þess að binda fyrst þennan sterka eiganda hússins. 28Muniði þetta: Fólk getur fengið fyrirgefningu fyrir allar syndir sínar og guðlast 29en guðlast gegn Heilögum anda verður aldrei fyrirgefið. Sá sem gerir það verður dæmdur í samræmi við það.“ 30Þetta sagði hann vegna þess að þeir sögðu að hann væri haldinn óhreinum anda.
31Bræður Jesú og móðir hans komu og báðu um að Jesús yrði sóttur til að koma út og tala við þau.32Þegar Jesú var sagt að móðir hans og bræður væru fyrir utan og vildu tala við hann33svaraði hann: „Hver er móðir mín og hverjir eru bræður mínir?“34Hann leit á fólkið sem umkringdi hann. „Jú,“ sagði hann, „þetta hérna eru móðir mín og bræður mínir,35vegna þess að það er sá sem gerir vilja Guðs sem er bróðir minn, systir mín eða móðir mín.“