Markúsarguðspjall15
1Strax næsta morgun funduðu æðstuprestarnir með öldungunum, lögmálskennurunum og öllu æðstaráðinu. Þeir bundu Jesú og fóru með hann til Pílatusar. 2„Ert þú konungur Gyðinganna?“ spurði Pílatus. „Það segir þú að ég sé,“ svaraði Jesús.3Æðstuprestarnir ásökuðu Jesú um fjölmargt en hann svaraði þeim engu.4„Ætlarðu ekki að segja neitt?“ spurði Pílatus hann aftur. „Heyrirðu ekki allt sem þeir eru að ásaka þig um?“5En Jesús svaraði enn engu, sem Pílatusi fannst stórmerkilegt.6Á hátíðinni var Pílatus vanur að sleppa einum fanga sem fólkið vildi fá lausan.7Í fangelsinu var maður sem hét Barabbas, uppreisnarmaður sem hafði framið morð í uppreisninni.8Mannfjöldinn byrjaði að hrópa og kalla á Pílatus að sleppa fanga lausum eins og hann hefði alltaf gert.9„Viljið þið kannski að ég sleppi konungi Gyðinganna?“ spurði Pílatus fólkið.10Hann vissi nefnilega að æðstuprestarnir höfðu bara handtekið Jesú vegna þess að þeir öfunduðu hann.11En æðstuprestarnir æstu fólkið upp í að hrópa að það vildi frekar fá Barabbas.12„Hvað viljið þið þá að ég geri við þennan mann sem þið kallið konung Gyðinganna?“ spurði Pílatus.13„Krossfestu hann!“ hrópaði fólkið.14„Af hverju?“ spurði Pílatus á móti. „Hvað hefur hann eiginlega gert af sér?“ En fólkið hrópaði bara enn hærra: „Krossfestu hann!“15Pílatus vildi halda fólkinu góðu og sleppti þess vegna Barabbasi lausum. En hann lét hýða Jesú og senda hann síðan til krossfestingar. 16Hermennirnir leiddu hann burt og í hallarsalinn sem var kallaður „pretorium“. Þangað kölluðu þeir alla hersveitina. 17Þeir klæddu Jesú í fjólubláa skikkju, fléttuðu kórónu úr þyrnum, settu hana á höfuðið á honum18og byrjuðu síðan að hylla hann sem konung Gyðinganna.19Þeir slógu hann í höfuðið með staf, hræktu á hann og krupu síðan og þóttust tilbiðja hann.20Þegar þeir voru búnir að hæðast að honum tóku þeir af honum fjólubláu skikkjuna, klæddu hann aftur í sín eigin föt og leiddu hann síðan út til krossfestingarinnar.21Á leiðinni létu þeir mann sem þeir sáu bera krossinn. Þessi maður hét Símon og var Kýreningur sem var á leiðinni heim úr sveitinni – hann var faðir Alexanders og Rúfusar. 22Þeir fóru með Jesú til Golgota, sem þýðir „Hauskúpustaðurinn“.23Þeir reyndu að gefa honum vín blandað með myrru, en hann neitaði að drekka það.24Þegar þeir voru búnir að krossfesta hann tóku þeir fötin hans og köstuðu upp á það hver þeirra fengi hvað.25Klukkan var um níu að morgni þegar þeir krossfestu Jesú.26Það sem hann var ásakaður um var skrifað fyrir ofan hann: „Konungur Gyðinganna“.27Þeir krossfestu líka tvo þjófa með honum, sinn hvorum megin við hann.28Þar með rættist það sem stóð í ritningunni , að hann yrði flokkaður með afbrotamönnum.29Fólkið sem fór þar framhjá hristi höfuðið. „Ætlaðir þú ekki að eyða musterinu á þremur dögum og reisa það svo aftur?“ hrópaði það til hans.30„Geturðu þá ekki bjargað sjálfum þér niður af krossinum?“31Æðstuprestarnir hæddust að honum sín á milli. „Hann bjargaði öðrum,“ sögðu þeir við lögmálskennarana, „en getur ekki bjargað sjálfum sér!32Nú ætti Kristur, hinn útvaldi konungur Ísraels, að stíga niður af krossinum, svo við sjáum hver hann er og trúum á hann.“ Meira að segja þeir sem voru krossfestir með honum bölvuðu honum. 33Um hádegi varð skyndilega aldimmt í öllu landinu til klukkan þrjú. 34Þá kallaði Jesús hátt: „Eloi, eloi, lama sabaktaní?“ sem þýðir „Guð minn, Guð minn, af hverju hefurðu yfirgefið mig?“ 35Sumum þeirra sem heyrðu þetta heyrðist hann segja „Elía“. „Hann er að kalla á Elía,“ sögðu þeir.36Einn þeirra hljóp og fyllti svamp með ediki , setti hann á stöng og rétti hann upp svo Jesús gæti drukkið úr honum. „Sjáum hvort Elía kemur og bjargar honum niður af krossinum,“ sagði hann.37Síðan hrópaði Jesús hátt og andaðist.38Á þeirri stundu rifnaði fortjaldið í musterinu lóðrétt í tvennt. 39Þegar hermaðurinn sem hafði staðið vörð um Jesú heyrði hvernig hann hrópaði og sá að hann hafði andast sagði hann: „Þessi maður var svo sannarlega sonur Guðs.“ 40Nokkrar konur stóðu og horfðu á úr fjarlægð, meðal annars María Magdalena, María móðir Jakobs yngri og Jóse, og Salóme.41Þær byrjuðu að fylgja Jesú þegar hann var í Galíleu og höfðu þjónað honum. Með þeim voru margar konur sem höfðu komið með Jesú til Jerúsalem.42Það leið á kvöldið – það var undirbúningsdagur hvíldardagsins.43Jósef af Arímateu, virtur meðlimur í æðstaráðinu sem trúði á væntanlega komu konungsríkis Guðs, fór þá til Pílatusar og bað um að fá að taka lík Jesú. 44Pílatus var hissa að heyra að Jesús væri strax dáinn. Hann kallaði til sín hermanninn og spurði hversu langt væri síðan Jesús hefði dáið.45Þegar hermaðurinn hafði staðfest að Jesús væri dáinn leyfði hann Jósef að taka líkið.46Jósef fór og keypti línklæði og vafði lík Jesú í þau. Síðan lagði hann Jesú í gröf sem var höggvin í klett og velti steini fyrir opið á gröfinni.47Og María Magdalena og María móðir Jóse sáu hvar gröf Jesú var.