Markúsarguðspjall1

1Svona hefst fagnaðarerindið um Jesú Krist, son Guðs. 2Í bók spámannsins Jesaja stendur: „Ég læt sendiboða minn fara á undan þér til að undirbúa veginn fyrir þig.“3Í óbyggðunum hrópar rödd: „Undirbúið komu Drottins, greiðið honum leið.“ 
4Maður sem hét Jóhannes kom fram í óbyggðunum. Þar skírði hann fólk, því með skírn í iðrun fengi það fyrirgefningu á syndum sínum. 5Fjöldi fólks kom til hans af Júdeusvæðinu og frá Jerúsalem, játaði syndir sínar og tók skírn í ánni Jórdan.6Jóhannes klæddist fötum úr úlfaldahári og leðurbelti og át engisprettur og villihunang. 7„Á eftir mér kemur sá sem er máttugri en ég,“ prédikaði hann. „Ég er ekki þess verður að svo mikið sem leysa skóreimarnar hans.8Ég skíri ykkur kannski með vatni, en hann á eftir að skíra ykkur með Heilögum anda.“
9Síðan kom Jesús frá Nasaret í Galíleu og Jóhannes skírði hann í ánni Jórdan.10Um leið og hann steig upp úr vatninu sá hann að himnarnir opnuðust og Andinn kom niður til hans eins og dúfa.11Frá himnunum hljómaði rödd sem sagði: „Þú ert heittelskaður sonur minn sem ég gleðst yfir.“ 12Andinn sendi hann út í óbyggðirnar,13þar sem hann var í fjörutíu daga og gekk í gegnum prófraunir Satans. Hann bjó á meðal villidýranna og englarnir þjónuðu honum. 
14Eftir handtöku Jóhannesar kom Jesús til Galíleu og flutti fólki fagnaðarerindið um konungsríki Guðs. 15„Tíminn er kominn,“ sagði hann, „og konungsríki Guðs nálgast. Iðrist synda ykkar og trúið fagnaðarerindinu!“ 
16Þegar Jesús var á gangi við Galíleuvatn sá hann Símon og Andrés bróður hans kasta neti í vatnið, þar sem þeir voru fiskimenn.17Hann sagði við þá: „Komið og fylgið mér, því með mér munuð þið ekki veiða fiska heldur menn.“ 18Þeir hentu strax frá sér netunum og fylgdu honum.19Skömmu síðar sá hann þá bræður Jakob og Jóhannes Sebedeussyni þar sem þeir sátu í bát að gera við net.20Hann kallaði þá til sín – þeir skildu Sebedeus föður sinn eftir í bátnum með vinnumönnunum og fylgdu honum.
21Þeir lögðu leið sína til Kapernaúm. Á hvíldardeginum fór Jesús í samkomuhúsið og kenndi þar. 22Fólkið var agndofa yfir kennslu hans, vegna þess að hann kenndi þeim ekki bara eins og lögmálskennararnir, heldur eins og sá sem hafði raunverulegt vald. 23Í samkomuhúsinu var maður með óhreinan anda sem hrópaði:24„Hvað vilt þú okkur, Jesús frá Nasaret? Ert þú kominn að tortíma okkur? Ég veit hver þú ert, heilagur sonur Guðs!“25Jesús hvessti augun á hann og sagði: „Þegi þú og snáfaðu út úr honum!“26Óhreini andinn engdist um í manninum, öskraði hástöfum og fór út úr honum.27Fólkið trúði ekki sínum eigin augum. „Hvað er þetta!“ hvíslaði það sín á milli. „Hann kennir með einhverjum nýjum mætti - hann skipar jafnvel óhreinum öndum fyrir og þeir hlýða honum.“28Og sögurnar af honum byrjuðu að dreifast um allt Galíleusvæðið.
29Þegar hann kom út úr samkomuhúsinu fór hann heim til Símonar og Andrésar með Jakobi og Jóhannesi,30þar sem þeir höfðu sagt honum að tengdamóðir Símonar væri veik.31Hann fór til hennar, tók í höndina á henni og hjálpaði henni á fætur – um leið læknaðist hún af hitanum, og byrjaði að þjóna þeim.32Sama kvöld, við sólsetur, fór fólk að koma til Jesú með alla þá sem voru veikir eða andsetnir. 33Allir íbúar borgarinnar voru komnir saman við dyrnar.34Hann læknaði marga sem voru veikir og kastaði út mörgum illum öndum, en leyfði illu öndunum ekki að tala, vegna þess að þeir vissu hver hann var. 
35Eldsnemma næsta morgun fór hann á fætur og fór út í óbyggðirnar til að biðja.36Símon og fylgjendur hans fóru á eftir honum og fundu hann.37„Allir eru að leita að þér,“ sögðu þeir.38„Höldum áfram í næstu bæi,“ svaraði hann þeim, „svo ég geti prédikað þar líka – það er það sem ég kom til þess að gera.“39Og Jesús prédikaði í samkomuhúsum um alla Galíleu og rak út illa anda.
40Holdsveikur maður féll örvæntingarfullur á kné fyrir framan Jesú. „Ég veit að þú getur hreinsað mig ef þú vilt það!“ sagði hann. 41Fullur samúðar rétti Jesús út höndina og snerti hann. „Ég vil!“ sagði hann. „Vertu hreinn.“42Við þessi orð hans læknaðist maðurinn af holdsveikinni og varð hreinn.43Jesús sendi hann strax burt og brýndi fyrir honum:44„Ekki segja neinum frá þessu – farðu og sýndu prestinum að þú ert orðinn hreinn og færðu hreinsunarfórnina í samræmi við lög Móse til að staðfesta lækninguna.“45En maðurinn fór og sagði söguna oft og víða. Þar af leiðandi gat Jesús ekki lengur gengið opinberlega inn í borgir heldur varð að dvelja í óbyggðunum, þangað sem fólk flykktist til hans alls staðar frá.